Monday, September 2, 2019

Fjölskyldan mín

Fjölskyldan mín 
by Ásta Rún Valgerðardóttir 
illus. by Lára Garðarsdóttir 
Language: Icelandic 
[Iceland]: Salka, 2017. 
38 p. : col. ill. ; cm. 
ISBN: 9789935483409 
Summary: Friðjón er fimm ára leikskólastrákur sem veit fátt skemmtilegra en að leika sér við vini sína. Dag einn er haldinn fjölskyldudagur og þá komast krakkarnir að því hversu fjölbreyttar fjölskyldur þeirra eru. Til að mynda á Friðjón tvær mömmur, sumir eiga stjúpforeldra, aðrir tala annað tungumál við foreldra sína og svo mætti lengi telja. Fjölskyldan mín er skemmtileg bók sem opnar umræðu um ólík fjölskylduform og fagnar fjölbreytileikanum. Fjölskyldan mín er fyrsta bók Ástu Rúnar Valgerðardóttur, sálfræðings. Lára Garðarsdóttir, handhafi barnabókaverðlauna IBBY, er höfundur mynda. Markmiðið með útgáfu bókarinnar er að fagna þeim fjölbreytileika sem finna má í fjölskyldum nútímans og fræða börn um ólík fjölskylduform í gegnum skemmtilega og lifandi sögu sem gerist í umhverfi sem börnin þekkja. Bókin opnar umræðu á milli barna og foreldra um lífið og tilveruna á leikskólanum og heima fyrir. Efnið er Ástu Rún afar hugleikið en hún er gift konu og þær eiga saman son á leikskólaaldri. 
Available: https://www.salka.is/products/fjolskyldan-min

No comments:

Post a Comment